Vefsjár

Landgrunnsvefsjá

landgrunnsvefsja_skjamynd

Landgrunnsvefsjá veitir aðgang að upplýsingum um gögn sem tengjast landgrunni Íslands, en fyrst um sinn er þar einkum efni frá Drekasvæðinu er varðar útboð á sérleyfum til rannsókna og vinnslu á hafsbotni. Sýnd eru reitakerfi fyrir útboðssvæði, yfirlit yfir hafsbotnsgögn og margvíslegar upplýsingar um gögn úr leiðöngrum. Vefsjánni er meðal annars ætlað að auðvelda þeim sem vilja fá upplýsingar um útboðssvæði að finna hvaða gögn eru til, af hvaða svæðum, hver aflaði þeirra og hvernig, hvenær gagnaöflunin fór fram og hvar er mögulegt að fá aðgang að gögnunum. Vefsjáin var opnuð í ársbyrjun 2009 og er efni hennar birt bæði á íslensku og ensku.

Nánar


Orkuvefsjá

ovs_skjamynd1Orkuvefsjá hefur tekið við hlutverki Gagnavefsjár og er nú birtingarstaður upplýsinga um staðtengjanleg gögn um Ísland í málaflokkum sem eru á ábyrgð Orkustofnunar. Gagnavefsjá var lokað í árslok 2011. Stöðugt er unnið að uppfærslu gagnasafna stofnunarinnar og vinnslu lýsigagna fyrir þau, en færa þurfti ýmsar upplýsingarnar sem áður birtust í Gagnavefsjá yfir í annað hugbúnaðarumhverfi. Þá er jafnframt verið að byggja upp ný landræn gagnasöfn sem fyrirhugað er að birta í Orkuvefsjá á næstunni. Vefhugbúnaður er sá sami og notaður er í Landgrunnsvefsjá.

Nánar

Gagnavefsjá

(Lokað í desember 2011)

gagnavefsja_skjamynd Gagnavefsjá birti upplýsingar um valið efni úr gagnagrunni Orkustofnunar (OS), en OS (áður Raforkumálaskrifstofan) hefur safnað gögnum um orkulindir landsins í meira en hálfa öld. Vefsjáin, sem var bæði á íslensku og ensku, var opnuð á netinu í mars árið 2004 og voru aðilar að verkefninu: orkumálasvið OS, Vatnamælingar OS og Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), sem höfðu árið áður verið formlega skildar frá OS, en síðar bættust við gögn frá Umhverfisstofnun. Vatnamælingar sem nú eru hluti Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun hættu að uppfæra  gögn til birtingar í Gagnavefsjá og fóru að nýta Náttúrvefsjá í þeim tilgangi. Gagnavefsjá hefur nú vikið fyrir Orkuvefsjá OS, en þar munu eingöngu birtast gögn sem eru á ábyrgðarsviði OS samkvæmt núgildandi lögum.

Nánar


Náttúruvefsjá

natturuvefsja_skjamynd(Lokað í desember 2011)

Náttúruvefsjá var samstarfsverkefni nokkurra stofnana þar sem markmiðið var að veita aðgang að upplýsingum úr landfræðilegum gagnasöfnum um náttúru Íslands. Vefsjáin birtist fyrst á netinu í október 2008 og þar voru margbreytileg gögn frá ólíkum aðilum um eðli íslenskrar náttúru á landi, sjó og vatni gerð aðgengileg innan sömu vefsjárinnar. Undirbúningsverkefni fyrir Náttúruvefsjá var styrkt af Rannís, en kostnaður við vinnslu verkefnisins var greiddur til helminga af verkefnisstjórn um íslenska upplýsingasamfélagið og Orkustofnun, auk framlags hugbúnaðarfyrirtækisins Gagarín sem þróaði hugbúnaðinn. Forræði og ábyrgð á Náttúruvefsjá var hjá Vatnamælingum Orkustofnunar og fylgdi verkefnið yfir til Veðurstofu Íslands í ársbyrjun 2009.

Nánar






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica