Eldri útgáfa
Orkustofnun hefur staðið fyrir margs konar útgáfu s.l. áratugi sem líta má að sem sögulegar heimildir um orkumál Íslendinga. Stofnuninn kappkostar við að varðveita gamlar útgáfu og að koma flestum þeirra á aðgengilegt form á vefnum.
Hér neðar er að finna ýmis eldri rit og bæklinga er tengjast orkumálum og Orkustofnun. Ritið ORKUMÁL er hins vegar í sérflokki, Hér er um að ræða rit sem hefur verið gefið út með hléum síðan 1959. Upphaflega voru í ritinu eingöngu upplýsingar um raforku en síðar voru einnig birtar upplýsingar um jarðhita, jarðhitanýtingu og eldsneytismál.
ORKUMÁL
Energy in Iceland: Historical perspective, present status, future outlook. Second edition.
Orkustofnun og iðnaðarráðuneytið gáfu í sameiningu út ritið Orka Íslands. Ritið kom fyrst út í nóvember
2003 og þá bæði á íslensku og ensku. Ákveðið var að gefa íslensku útgáfuna ekki aftur út, en í september 2006 kom önnur útgáfa á ensku.
Meðal efnis eru upplýsingar um orkulindir Íslands, frumorkunotkun og framleiðslu og orkunotkun.
Ritið má nálgest hér á pdf formi.
Geothermal Development and Research in Iceland
Orkustofnun og iðnaðarráðuneytið gáfu út ritið Geothermal Development and Research in Iceland í maí 2006. Vegna gífurlegra vinsælda var ritið endurútgefið árið 2010.
Í ritinu er fjallað um rannsóknir og nýtingu jarðhitans frá ýmsum sjónarhornum, en þó er þar aðallega fjallað um þ
á þróun sem orðið hefur í notkun jarðhita á Íslandi síðustu ár og áratugi. Er ritið kærkomið þeim sem um jarðhitamál fjalla á erlendum vettvangi, en slíkt yfirlitsrit hefur ekki áður verið gefið út á ensku.
Sveinbjörn Björnsson skrifaði texann, en myndir sem prýða bæklinginn koma flestar frá starfsmönnum Orkustofnunar og Íslenskra orkurannsókna. Sjá útgáfu á pdf formi
Vistvænt eldsneyti
Rit um Vistvænt eldsneyti kom út í október 2005. Þar eru m.a. reifaðar hugmyndir um hvernig draga megi úr og bæta notkun jarðefnaeldsneytis hér á landi, skilyrði sem þarf að uppfylla og nokkrar mögulegar leiðir nefndar til að ná settum markmiðum. Sérstök áhersla er lögð á lausnir sem geta nýst í náinni framtíð, þ.e. á næstu 10-15 árum.
Meðal þess sem lagt er til að gert verði til að ná árangri er að breyta skattaumhverfi, verðleggja mengun og að sett verði stefna bæði hvað varðar menntun og rannsóknir á vistvænu eldsneyti. Ritið má nálgast á Bókasafni Orkustofnunar og einnig á pdf formi.
ORKUSTOFNUN
Sérprent úr bókinni: Í ljósi vísindanna: Saga hagnýtra rannsókna á Íslandi (Ritröð VFI, 3). Reykjavík 2005. Útgefið af Verkfræðingafélagi Íslands.
Ritið hefur að geyma greinasafn eftir starfsmenn Orkustofnunar, s.s. um Virkjun jökulánna, Jarðhita í stað Olíu við húshitun, Virkjun jarðhita til raforkuvinnslu, Jarðfræðikortlagningu á Orkustofnun, Landgrunn og olíuleit og Jarðhitaskóli Háskóla Sþ.
Nálgast má eintök af sérprentinu á Orkustofnun og einnig er hægt að skoða hann hér á pdf-formi.
Orka Íslands
Orkustofnun og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið gáfu út í nóvember 2003 upplýsingarit um orkumál á Íslandi sem ber heitið Orka Íslands. Í ritinu er að finna almennar upplýsingar um orkumál m.a. frumorkunotkun, orkulindir, vinnslu og notkun raforku svo eitthvað sé nefnt.
Ritið má nálgast hér á pdf formi.


