Rafrænt heimildasafn Orkustofnunar

Markmið að auka og auðvelda aðgengi i vefsjám og á vef

Verkefnið "Rafrænt heimildasafn" hófst 2003 með styrk frá Upplýsingasamfélaginu og skyldu rafræn gögn tengjast vefsjám landrænna gagna og vera aðgengileg í Gegni og á vef stofnunar

Forgangsverkefni var að skanna skýrslur og greinargerðir,  kort, teikningar og myndefni og önnur gögn v/rannsókna til að auka og auðvelda aðgengi almennings að efninu í samræmi við markmið um rafræna stjórnsýslu. Vistun og varðveisla frumgagna er í gagnasöfnum í Oracle gagnagrunni og á ábyrgð gagnastjóra, en vistun og varðveisla afleiddra og túlkaðra gagna á ábyrgð skjalasafns og lúta lögum um Þjóðskjalasafn. Umsjón og skráning útgefinna gagna, aðgengi og afgreiðsla er á ábyrgð bókasafns svo og skylduskil útgefins efnis stofnunar skv. lögum um skylduskil til safna.

Verkþættir

  • Skanna allt útgefið efni OS;  skýrslur og greinargerðir 1947-2007= 20.000  færslur > sjá bókasafn
  • Skönnun og skráning kortasafns 1967-2003 og teikningasafns 1938-1998 (37.500 færslur) > sjá Landræn söfn
  • Skönnun og skráning  myndefnisssafns v/rannsóknarefnis 1947-, ljósmyndir, skyggnur, þ.á.m. borholumyndasafn 11.000 færslur > sjá Landræn söfn



Þetta vefsvæði byggir á Eplica