Teikningasafn

teikningasafnÍ teikningaskrá Orkustofnunar (OS) eru skráðar um 37500 teikningar sem unnar voru á vegum teiknistofu Raforkumálaskrifstofunnar og síðar OS á tímabilinu 1938-1998. Teikningarnar eru flestar varðveittar á filmum í skjalasafni Orkustofnunar, en safnið hefur ekki verið skannað nema að litlum hluta og ekki kerfisbundið.

Teiknistofan sá um gerð teikninga, korta, línurita, glæra, veggspjalda og annars myndefnis sem til þurfti í starfseminni, auk verkefna sem lutu að útgáfumálum. Starfmenn hafa verið mismargir í gegnum tíðina, en þeir voru 7-8 þegar flest var. Einar Þorláksson (1933-2006) listmálari, starfsmaður Raforkumálastjóra og OS 1954-2000, skráði allar teikningar sem teiknaðar voru á teiknistofunni í tvær töflur í Oracle. Starfsemi teiknistofunnar hætti um síðustu aldamót, en ný tækni var þá komin almennt til sögunnar og sérfræðingar stofnunarinnar farnir sjálfir að vinna þá verkþætti sem teiknistofan hafði áður sinnt.

Teikningaskráin samanstendur af nokkrum efnisatriðum, þar á meðal teikningarnúmeri (frumritanúmer), stærð, höfundi og skýringatexta. Á vefsíðu OS er nú mögulegt að skoða skrána eftir ártali í númeraröð eins og hún kom frá upphaflegum skrásetjara, en jafnframt má leita eftir númeri teikningar og í textasvæði skrárinnar. Skráin virðist ekki alveg tæmandi, þar sem vitað er um teikningar sem eru eldri en fram koma í skránni og nýrri teikningar sem hafa verið unnar hjá öðrum starfsmönnum eftir 1998, en þær hafa ekki verið skráðar miðlægt.

Teikningaskrá – Leit í teikningasafni Orkustofnunar


Með því að smella hér er hægt að leita að teikningum og kortum eftir þremur leiðum:

  • Textaleit. Hér má slá inn staðarnafn eða annað leitarorð. Dæmi: “Þjórsá” á að skila orðum eins og “Þjórsárver, Þjórsá, Þjórsársvæði. Ekki skiptir máli hvort slegnir eru inn há- eða lágstafir.
  • Teikningarnúmer. Upplýsingar um efni teiknistofunnar eru upphaflega vistaðar í tveimur skrám og vísa fyrstu tveir stafir númera í þeim báðum til ártals: Fyrsta færslan í fyrri skránni er nr. 38F00004 og sú síðasta nr. 80F20369 (nær til ársloka 1980). Fyrsta færslan í síðari skránni er nr. 81010001 og sú síðasta nr. 98120379 (hefst í ársbyrjun 1981).
  • Ártal. Með því að velja ártal í lista má kalla fram skrá í númeraröð yfir allar teikningar sem unnar voru á því ári.

Leitarniðurstöður sýna teikningarnúmer, ártal, stærð og lýsingu.

Ef þörf er á nánari upplýsingum úr teikningaskránni eða skoða teikningar, vinsamlegast hafið samband við Orkustofnun (Þórunn E. Sighvats).



Þetta vefsvæði byggir á Eplica