Gagnasöfn
Stafræn gagnasöfn

Fjölbreytt stafræn gögn hafa orðið til í starfsemi Orkustofnunar (OS) í gegnum tíðina, en stór hluti þeirra er í Oracle gagnagrunni eða ArcInfo landupplýsingakerfi stofnunarinnar. Gögnin eru ýmist einungis aðgengileg starfsmönnum eða eru opin öðrum sem á þeim þurfa að halda. Í þeim breytingum sem orðið hafa á OS í gegnum tíðina hefur verið reynt að tryggja að þau gögn sem unnin hafa verið fyrir opinbert fé á vegum OS séu aðgreind og stefnt að því að þau verði gerð öðrum aðgengileg. Opið aðgengi er að upplýsingum úr ákveðnum landrænum gagnasöfnum stofnunarinnar í gegnum Gagnavefsjá , Landgrunnsvefsjá og Orkuvefsjá . Þá má sjá lýsigögn fyrir stafræn gagnasöfn OS meðal upplýsinga annarra stofnana og sveitarfélaga á lýsigagnavefnum Landlýsingu .
Skrá yfir helstu gagnagrunna og gagnaþekjur OS er í vinnslu. Nánari upplýsingar fást hjá starfsmönnum OS.
ÖNNUR Heimildasöfn
Orkustofnun varðveitir ýmis heimildasöfn sem orðið hafa til við starfsemi stofnunarinnar á liðnum áratugum. Má þar nefna kortasafn, teikningasafn og myndasafn.
Heimildasöfnin eða hlutar þeirra eru ýmist fullskráðir og skönnun lokið eða að þeir eru á vinnslustigi, en markmiðið er að bæta aðgengi að upplýsingum um gögn um leið og langtímavarðveisla frumgagna er tryggð.
Nær allar útgefnar skýrslur OS og forvera hennar, allt frá árinu 1947, hafa verið skannaðar. Skýrslur frá árunum 1962-2010 hafa að auki verið skráðar í Gegni (Landskerfi bókasafna) og eru þar aðgengilegar á rafrænu formi.
Með tímanum ætti að verða mögulegt að leita að upplýsingum um meginefni safnanna á vefsíðu OS og/eða í Orkuvefsjá.
Almennt um landræn gagnasöfn

Gögnum má í meginatriðum skipta í tvo grunnflokka eftir því hvort þau eru í eðli sínu staðtengjanleg eða ekki. Landrænum (staðtengjanlegum) gögnum má síðan skipta í þrjá meginflokka: fjarkönnunargögn, kortagögn og töluleg rannsókna- eða stjórnsýslugögn.
Form gagnanna er annaðhvort hefðbundið (pappír/filmur) eða stafrænt (rasti, vektor, texti/tölur). Gagnlegt er að gera greinarmun á stafrænum skrám annars vegar og hins vegar stærri gagnasöfnum þar sem skráðar eru ýmsar upplýsingar um gagnasöfn (lýsigögn).
Sömu gögnin eru hins vegar oft til á ólíku formi og eru af mismunandi gerð, eins og sjá má á skýringarmynd.
Veggspjöld
Vefsjár og gögn OrkustofnunarAðgengi að Orkugrunnkortum í Orkuvefsjá
Veggspjöldin voru birt á málþingi um varðveislu landfræðilegra gagna sem haldið var í Þjóðarbókhlöðunni 23. september 2010 og á ráðstefnunni “Landupplýsingar 2010” sem haldið var í Veisluturninum, Kópavogi, 23. október 2010.
Landræn gögn – Stefnuleysi í varðveislumálum (2012)
Vefsjár – Ábyrgð á afritun og varðveislu heimilda (2012)
Veggspjöldin voru birt á aðalfundi Orkustofnunar sem haldinn var í ráðstefnuhúsinu Hörpu (Rímu) 30. mars 2012.
