Sérfræðingur – á sviði raforkueftirlits
Orkustofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings við eftirlit með framkvæmd raforkulaga.
Helstu verkefni
· Vinna að mótun og framkvæmd úttekta á starfsemi dreifiveitna og flutningsyfirtækja
· Greining á rekstrarforsendum fyrirtækjanna og virkni tekjumarka m.a með líkanagerð, hermun og álagsprófunum
· Öflun gagna úr rekstri þeirra sem unnið er úr
· Að hafa samskipti við dreifiveitur og flutningsfyrirtæki
· Miðlun gagna og upplýsinga um raforkumál
Hæfniskröfur
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi, helst á sviði rekstrarverkfræði eða rekstrarhagfræði
· Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni
· Hæfileiki til þess að koma frá sér efni í töluðu og rituðu máli
· Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði
· Æskilegt er að umsækjandi hafi vald á einu norðurlandamáli
· Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á rekstri orkufyrirtækja
Laun greiðast samkvæmt samningum fjármálaráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri, sími 5696000, netfang gudni.a.johannesson@os.is.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist til Guðnýjar Þórsdóttur starfsmannastjóra Orkustofnunar, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík eða á netfang gd@os.is eigi síðar en 6. febrúar 2012.
Öllum umsóknum verður svarað.
Orkumálastjóri
