Olíuleit á Drekasvæði
Olíuleit á íslenska landgrunninu er á byrjunarstigi. Þrátt fyrir það er töluvert til af jarðeðlisfræðilegum gögnum, þ.m.t. gögn frá háskólum og rannsóknastofnununum, gögn sem stjórnvöld hafa látið safna og gögn sem hefur verið safnað af einkafyrirtækjum. Orkustofnun veitir leyfi til leitar, rannsóknar og vinnslu á kolvetni. Leitarleyfi eru ekki sérleyfi og er ávallt opið fyrir umsóknum um slík leyfi. Leyfi til rannsóknar og vinnslu á kolvetni eru sérleyfi og eru þau að öllu jöfnu veitt í útboðum.
