Jarðváreftirlit
Smáskjálftavirkni getur verið forboði stærri jarðskjálfta og jarðváreftirlit Veðurstofu Íslands hefur því sérstakar gætur á svæðum þar sem virkni er í gangi. Á svæðinu milli Bláfjalla og Hengils eru kortlagðar jarðskjálftasprungur, en þar er talið að skjálfti af stærðargráðunni Ml 5-6 hafi orðið. Í augnablikinu bendir þó ekkert til að stærri skjálfti sé í aðsigi.
Á árunum 1994-1998 mældist bæði þensla og mikil jarðskjálftavirkni á Hellisheiði, sem lauk með skjálfta suður af Litla-Skarðsmýrarfjalli þann 4. júní 1998 af stærð M 5,9 og öðrum í Suðurhálsum Skálafells þann 13. nóvember 1998 af stærð M 5,7. Virkninnar gætti allt vestur að virkjunarsvæði Hellisheiðarvirkjunnar. Orsakir þessarar hrinu eru hins vegar ekki niðurdæling heldur tengist landreki og hugsanlega kvikuhreyfingum. Þetta var áður en boranir hófust þar. Á mynd a sést að stærstu skjálftarnir voru ámóta stórir eða nokkuð stærri en í hrinunum 2011. Mynd b sýnir losun spennu á dag á tímabilinu. Þar sést að losun spennu einstaka daga var heldur meiri á fyrra tímabilinu heldur en því síðara.

Mynd: (a) Stærð skjálfta við Húsmúla á tímabilinu 1995-2011. Hver súla sýnir stærsta skjálfta sem varð tiltekinn dag. (b) Spennuútlausn (móment) á dag í skjálftahrinunum við Húsmúla. Mynd frá ÍSOR.
