Jarðskjálftamælanet
Jarðskjálftamælar eru notaðir til að fylgjast með jarðskjálftum sem verða við niðurdælingu. Næstu stöðvar í SIL-kerfinu, sem rekið er af VÍ, eru á Sandskeiði (í ~8 km fjarlægð), við Bjarnastaði í Ölfusi (í ~13 km fjarlægð), hjá Króki í Grafningi (í ~14 km fjarlægð) og við Heiðarbæ í Þingvallasveit (í ~17 km fjarlægð). Þessir mælar nema skjálfta allt niður í stærð Ml -0,3, og flest alla skjálfta af stærð yfir Ml 0,6-0,7. Dýpi skjálftanna mælist um 2-5 kílómetrar. Óvissan í dýptarákvörðun verður nokkuð mikil þegar fjarlægð í næstu stöð er um tvisvar sinnum meiri en dýpið.
Háskólinn í Uppsölum rekur í augnablikinu nokkra mæla á Hengilsvæðinu og eru að minnsta kosti tveir þeirra mæla nær upptökum skjálftanna. Þá rak ÍSOR 5 jarðskjálftamæla nærri upptökum skjálftanna sem urðu við borun holu HN-17. Gögn úr þessum mælum geta bætt nákvæmni staðsetninga töluvert. Fylgst er með landhreyfingum á Hellisheiði með endurteknum mælingum á neti landmælingapunkta sem mældir eru á fára ára fresti með GPS tækjum. Engin GPS tæki sem mæla í sífellu (CGPS) eru staðsettir nálægt borholunum, næstu tæki eru á Ölkelduhálsi, í Hveragerði og við Hlíðardalsskóla..
Hér má nálgast nýjar upplýsingar um jarðskjálfta á Hengilssvæðinu
