Skjálftavirkni við borun
Smáskjálftavirkni mældist í nokkrum tilvikum þegar holurnar á Húsmúlasvæðinu voru boraðar sem bendir til þess að holurnar skeri virkar sprungur – þ.e. sprungur sem spenna er yfir. Borun holu HN-17 sem er síðasta holan sem boruð er á svæðinu olli hvað mestri skjálftavirkni. Á myndinni eru staðsetningar stærstu skjálftanna sýndar. Smáskjálftavirkni kom einnig fram þegar dælutilraunir voru gerðar í holunum til að meta afköst þeirra. Dælutilraunir fóru fram með misheitu vatni og virðist smáskjálftavirkni helst verða vart þegar köldu vatni er dælt í holurnar. Af því má draga þá ályktun að varmaþensluáhrif losi spennu sem fyrir er í berginu og orsaki þannig jarðskjálfta. Almennt er það talið góðs viti ef smáskjálftavirkni fylgi niðurdælingu. Það er vísbending um það að sprungur á svæðinu séu virkar og það að lekt þeirra sé góð.

Staðsetningar skjálfta sem mældust stærri en 1.5 með jarðskjálftamælaneti VÍ meðan hola HN-17 var boruð. Niðurdælingarholur á Húsmúlasvæðinu eru merktar sérstaklega. Ennfremur eru misgengi teiknuð inná kortið.
