Tvinnbílar
Tvinnbílar, þ.e. bílar sem bæði hafa rafhreyfil og bensín- eða dísilvél sem aflgjafa, eru nú þegar á markaði og fór fyrsti fjöldaframleiddi tvinnbíllinn á götuna 1997. Þetta eru ekki eiginlegir rafmagnsbílar í þeim skilningi að orkugjafinn sé rafmagn, en þeir eru sparneytnari en hefðbundnir bílar. Þessir bílar eru lítið eitt dýrari í innkaupum en sambærilegir bílar, enda kemur hinn sérstæði rafbúnaður til viðbótar öðrum hlutum venjulegs bíls. Þrátt fyrir verðmuninn njóta tvinnbílar æ meiri vinsælda, hér á landi sem annars staðar, og sífellt fleiri bílaframleiðendur bjóða fram tvinnbíla eða eru með áform um slíkt. Hér á landi hefur verið gefinn afsláttur af vörugjöldum fyrir tvinnbílana sem og aðra vistvæna bíla og hefur afslátturinn komist nálægt því að vega upp á móti verðmuninum.
Það sem gerir tvinnbíla sérstaklega áhugaverða er að með þeim er þróuð tækni í áttina að enn vistvænni bílum, svo sem tengiltvinnbílum eða vetnisbílum.
Tengiltvinnbílar, þ.e. tvinnbílar sem stinga má í samband, en ganga líka fyrir öðru eldsneyti s.s. bensíni, eru nýir á markaði og munu fyrstu tengiltvinnbílarnir koma til Íslands síðla árs 2011. Munurinn á tengiltvinnbíl og tvinnbílsgerð þeirri sem lýst er að framan er nær einvörðungu fólginn í því að tengiltvinnbílinn hefur öflugri rafhlöðu, sem gerir það kleift að hlaða bílinn með rafmagni beint úr rafkerfinu, úr „tengli“, svo sem um nætur. Þannig má aka hluta af daglegri vegalengd á rafmagni sem á uppruna sinn í hinu almenna rafkerfi. Því öflugri sem rafhlaðan er þeim mun nær því er tengiltvinnbíllinn að vera hreinn rafbíll. Athyglisvert er að mikið af þeirri tækniþróun sem orðið hefur við gerð tvinnbíla mun nýtast að fullu verði það ofan á að vetni verði orkuberinn.
Líklega getur raforkunetið (flutnings- og dreifikerfið) á Íslandi borið þá auknu notkun sem tengiltvinnbílar hafa í för með sér án verulegs viðbótartilkostnaðar ef bílarnir eru hlaðnir að mestu leyti á næturnar. Þetta gildir jafnvel þótt reiknað sé með því að alfarið yrði skipt yfir í slíka bíla, sem líklega verður seint.
Hægt er að lesa meira um tengiltvinnbíla hér (á ensku) og tvinnbíla hér (á ensku).
