Leiðbeiningar með Gagnavefsjá |
Gagnavefsjáin er gagnvirk og leyfir notandanum að þysja inn og út (zoom in/out) á kortinu, gera fyrirspurnir í gagnagrunninn og tengjast öðrum vefjum sem lesa beint úr gagnagrunninum. Þannig er m.a. hægt að skoða myndir af viðkomandi stöðum og skoða hvaða heimildir eru til um hvern og einn stað. Aðgerðahnappar. Á Gagnavefsjánni eru aðgerðahnappar til þess að auðvelda notendum að sækja gögn úr gagnagrunni og birta sem kort eða töflur. Ef músinni er rennt yfir tiltekinn hnapp birtist texti sem sýnir til hvers hnappurinn er notaður. Þegar hnappur er valinn birtist einnig skýring, neðarlega til vinstri á vefsíðunni, sem segir til um hvaða hnappur er virkur. Þegar hnappur hefur verið valinn breytist litur hans. Þekjur. Gögnum í Gagnavefsjánni er raðað niður í þekjur þar sem hver þekja er mengi af gögnum. Til dæmis eru vatnshæðamælar í einni þekju og borholur í annarri. Ef sækja á upplýsingar úr þekju þarf hún að vera virk. Til að virkja þekju er smellt á nafn hennar í þekjulistanum hægra megin á vefsíðunni. Þéttleiki og upplausn gagnanna er mjög mismikill. Gagnavefsjáin stýrir aðgengi að sumum þekjum sem ekki er ráðlegt að skoða í lítilli stækkun. Sem dæmi má nefna að hæðarlínur í mælikvarðanum 1:50.000 teiknast aðeins ef notandinn hefur stækkað nægilega það svæði sem hann ákveður að skoða. Þó eru allar þekjur sýnilegar í þekjulistanum. Gagnavefsjáin er enn í vinnslu og verður í stöðugri þróun og þess vegna er mögulegt að hún sýni ekki allra nýjustu upplýsingar. Einnig á eftir að hnitsetja töluvert af gögnum og eru þau gögn þ.a.l. ekki aðgengileg.
|