Gagnagrunnur Orkustofnunar Orkustofnun (áður Raforkumálaskrifstofan) hefur safnað gögnum um orkulindir landsins í meira en hálfa öld. Árið 1989 hófst skráning slíkra gagna í gagnagrunn stofnunarinnar (Oracle). Þar er m.a. að finna grunnupplýsingar um borholur, borholumælingar, sýnatökustaði, efnagreiningar, mælistaði, vatnasvið og vatnshæðarmælanet.
Stefnt er að því að öll gögn verði tengd landfræðilegri staðsetningu en ennþá vantar nokkuð upp á að allir staðir sem upplýsingar eru til um séu tengdir hnitum. Landfræðileg hnit eru til fyrir alla vatnshæðamæla í rekstri en enn er unnið að því að skrá staðsetningar t.d. borholna og sýnatökustaða. Útgefið efni Orkustofnunar verður einnig tengt þeim stöðum sem fjallað er um og er unnið að því að koma skýrslum á stafrænt form svo hægt verði að nálgast þær gegnum Gagnavefsjána.
Þekjur í Gagnavefsjá Allar þekjur eru sóttar í Oracle gagnagrunn með ArcSDE. Helsta vandamálið, sem við er að glíma, er að þekjur í ólíkum mælikvörðum passa oft illa saman. Sem dæmi má nefna að hæðarlínur í mælikvarðanum 1:50.000 passa illa við strandlínu í mælikvarðanum 1:250.000. Þetta veldur því að hæðarlínur lenda sumstaðar úti í sjó.
Gögn þau sem eru aðgengileg með Gagnavefsjánni eru auðkennd með skilgreindri staðsetningu (hnitum). Á Orkustofnun er notað tiltekið kerfi þar sem hver staður er auðkenndur með staðartegund og -númeri. Mikið af gögnum í gagnagrunni Orkustofnunar eru enn án hnita, en unnið er að því að hnitsetja þau. Sérhvert staðarnúmer, innan tiltekinnar staðartegundar, gildir aðeins fyrir einn tilgreindan stað.
Vatnafar, Jarðfræði, Jarðhiti, Orkunýting, Vatnsorkukostir, Vindatlas, Náttúruvernd, Staðfræðigögn
|
Vatnafar Vatnshæðarmælar, Rennslismælistaðir Aflagðir vatnshæðarmælar Veðurstöðvar Vatnamælinga Flóðagreindir vatnshæðarmælar Vatnasvið, Dýptarkort Ár, vötn og jöklar
|
Jarðfræði Virkar og útkulnaðar megineldstöðvar og öskjurimar Nútímahraun Gosbelti Aldur jarðlaga
|
|
Jarðhiti Borholur, Hverir og laugar Viðnámsmælingar Jarðhitasvæði Háhiti, yfirborðsummerki Rannsóknasvæði háhita Jarðhitakort HeTo
|
Orkunýting Sundlaugar, Hitaveitur Vatnsveitur Virkjanir Varaafl Heimarafstöðvar Lón í rekstri
|
|
Vatnsorkukostir Stöðvarhús, Stíflur Göng, Skurðir, Lón
|
Vindatlas Mælistöðvar
|
|
Náttúruvernd Friðlýst svæði Náttúruminjaskrá Náttúruverndaráætlun
|
Staðfræðigögn Bæir, Þéttbýli Jarðamörk, Örnefni Hæðarlínur, Vegir, Land
|
|