gagnavefsja - Um Gagnavefsjá

Um Gagnavefsjá

Gagnagrunnur Orkustofnunar og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) geymir mikið af gögnum um auðlindir og náttúru Íslands. Til að auðvelda aðgang að þessum gögnum hefur verið smíðuð vefsjá.

Í vefsjánni er veittur aðgangur að þeim gögnum um orkulindir, orkubúskap, orkunotkun og aðrar rannsóknir um náttúrufar landsins sem hefur verið aflað fyrir almanna fé. Einnig er veittur aðgangur að gögnum sem stofnanirnar hafa aflað fyrir verkkaupa sem hafa gefið samþykki sitt til birtingar.

Gögnin birtast á hæðarlínu- og vatnagrunni Landmælinga Íslands, samkvæmt samningi þar um.

Um notkun vefsjárinnar. Heimilt er að birta gögn sem fengin eru með Gagnavefsjánni enda skal uppruna þeirra getið. Allar breytingar á gögnunum eru óheimilar. Gerð vefsjárinnar var styrkt með fjárveitingu fjármálaráðuneytisins vegna verkefna sem tengjast upplýsingasamfélaginu.


Umsjónarmenn gagna:

Orkustofnun: Þorvaldur Bragason
Vatnamælingar:  Jórunn Harðardóttir
ÍSOR: Gunnlaugur M. Einarsson
Umhverfisstofnun: Ólafur Arnar Jónsson